Íslenska
English
English
Alliance Francaise

Hjá Alliance Française er það barnaleikur að læra frönsku. 
Alliance Française hefur verið brautryðjandi í frönskukennslu
á Íslandi allar götur síðan 1911. Við bjóðum upp á
frönskunámskeið og uppgötvun á franskri menningu fyrir
börn frá 4 ára aldri, þar sem þau kynnast frönsku í gegnum
leik, söng, leikrit, kvikmyndir og skapandi skrif.
Aðstaða:
Tryggvagata 8, 2. hæð. Bókasafn með barnabókadeild, geisladiskum og DVD-myndum.
Námskeið:
Frönskunámskeiðin byrja í janúar 2009, kennarar: Sólveig Simha, frönsk-íslensk leikkona og kennari í frönsku sem erlent mál kennir yngstu börnunum, François Heenen og Marc Portal kenna þeim eldri. Við bjóðum bæði upp á námskeið fyrir börn sem hafa aldrei lært frönsku og einnig upp á námskeið fyrir frönskumælandi börn.
Aldursskipting hópa : 4-6; 7-10; 11-14; 15-18
Aldur:
4 – 18
Tungumál
Hjá Alliance Française er það barnaleikur að læra frönsku. Alliance França...
Tungumál | Alliance Francaise
Skoða nánar »
Skoða nánar »





