English
Dansskóli Jóns Péturs og Köru
Staðsetning: Reykjavík
Sími: 553-6645
Valsheimilið Hlíðarenda - 101 Reykjavík
Námskeið byrjar: September 2009
20 ára
Dansskóli Jóns Péturs og Köru var stofnaður 28. ágúst árið 1989 og fagnar því 20 ára afmæli í haust. Dansskólinn hefur flutt sig um set og er kominn í Valsheimilið að Hlíðarenda. Kennt verður í þremur glæsilegum sölum sem þar eru til húsa. Afmælisfagnaður skólans verður haldinní húsakynnum skólans sunnudaginn 13. september kl. 15-17.
Nú fer haustönnin að fara af stað og hefst kennsla laugardaginn 12. september. Dansskóli Jóns Péturs og Köru býður upp á fjölbreytt námskeið og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Það nýjasta sem boðið verður uppá er námskeið í Michael Jackson dönsum. Kenndir verða dansar við vinsælustu lög hans. Einnig verður í fyrsta skipti boðið upp á námskeið fyrir 3 ára börn. Sama gjaldskrá gildir frá síðasta vetri en í tilefni af afmælinu verður veittur 10% afsáttur af öllum námskeiðum skólans. Innritun er hafin og fer fram á heimasíðu dansskólans www.dansskoli.is.
Aðstaða:
Kennt er í þremur sölum, Sólarsal, Mánasal og Stjörnusal. Á milli Sólarsalar og Mánasalar er felliveggur og er hægt að gera þá að einum stórum sal sem er þá tæplega 300 m2.
Námskeið:
3 ára:
Fyrir yngstu nemendurna 3 ára er boðið upp á dans, söng og leik. Kenndir eru dansar þar sem þau hreyfa sig í takt við tónlistina, syngja og leika. Þessu fléttað saman við tónlist svo börnin fái útrás fyrir þá miklu hreyfiþörf sem þau hafa. Foreldrar taka þátt í tímunum.
4-5 ára:
4 – 5 ára börn læra dansa þar sem fléttað er saman dansi, söng og leik. Einnig eru kenndir sígildir barnadansar s.s. Fugladansinn, Fingrapolki og Skósmiðadansinn svo eitthvað sé nefnt auk þess að þroska samskipti þeirra á milli.
Börn 6-9 ára byrjendur:
Á dansnámskeiðum fyrir 6-9 ára byrjendur eru kennd fyrstu sporin í nokkrum samkvæmisdönsum s.s Cha Cha Cha, Enskur vals, Samba og Jive. Kennd eru fyrstu sporin af Skottís og léttir Freestyledansar. Einnig læra þau fjöruga partýdansa. Lögð er áhersla á eðlileg samskipti og snertingu á milli kynja.
10 ára og eldri byrjendur:
Hjá eldri börnum og unglingum eru kenndir almennir samkvæmisdansar og nokkrir af gömlu dönsunum. Mest áhersla er lögð á s.-amerísku dansana Cha Cha Cha, Jive og Samba
Börn og unglingar framhald:
Á framhaldsnámskeiðum er haldið áfram að byggja upp á þeim grunni sem börnin hafa lært og bætt inn fleiri dönsum og sporum. Kennt er einu sinni til fjórum sinnum í viku í 50 mínútur í senn og er önnin í 14 vikur.
Michael Jackson dansar:
Kenndir verða dansar við vinsælustu lög Michael Jackson. Mun bregða fyrir helstu hreyfingum meistarans.
Freestyle:
Á Freestyle dansnámskeiðinu eru kenndir dansar þar sem dansað er við vinsælustu tónlistina hverju sinni. Stigin eru spor og dansaðar hreyfingar sem bregður fyrir á tónlistarmyndböndum.
Jazz:
Jazz er byggður upp á gamla Broadway stílnum og færður til samtímans á skemmilegan hátt. Þar er notuð líkamleg tjáning á nýjustu tónlistinni.
Hiphop:
Hiphop dans er nýjasta æðið á Íslandi í dag!! Á námskeiðunum er kennt "The old school" og "The new school", það er semsagt gömlu klassísku danssporin í Hiphop og svo það allra ferskasta og nýjasta í Hiphop í dag ásamt því að læra "choreography", þ.e. dansrútínu. Námskeiðin eru jafnt fyrir stelpur og stráka. Hiphop dans snýst um að stjórna sínum eigin líkamshreyfingum þegar dansað er við Hiphip tónlist og tjá sig um leið og dansað er við tónlistina.
Break:
Break gjörbreytti fátækrahverfum New York ásamt Hip Hop menningunni sem varð til að klíkukrakkarnir fóru að kljást með rappi og dansi frekar en kylfum og sveðjum. Það þróaðist með James Brown byltingunni á 8. áratugnum en varð fyrst vinsælt á heimsvísu gegnum tónlistarmyndbönd og kvikmyndir um miðjan 9. áratuginn. Breakið tekur til sín hreyfingar úr m.a. capoiera, steppdansi, kung-fu, lindy-hop og fimleikum.
Fullorðnir-samkvæmisdans:
Fyrir fullorðna verður boðið upp á námskeið í samkvæmisdönsum. Á námskeiðinu fyrir byrjendur eru kenndir suður-amerískir dansar sem nýtast á dansleikjum s.s. Jive, Cha Cha Cha, Mambó og Salsa ásamt Tjútti og fleiri dönsum.
Salsa:
Á þessu námskeiði eru kennt LA-style Salsa með Merenge ívafi. Þetta eru skemmtilegir dansar við hina seiðandi suðrænu tónlist sem höfðar svo vel til okkar Íslendinga.
Sér hópar
Dansskólinn býður upp á styttri og lengri námskeið fyrir sér hópa s.s. vinnustaðahópa, saumaklúbba eða vinahópa. Kenndir eru suður-amerískir dansar sem nýtast á dansleikjum ss. Jive, Cha Cha Cha, Mambó og Salsa ásamt Tjútti og fleiri dönsum. Einnig geta námsskeiðin verið sérstaklega hönnuð með þarfir hópsins í huga.
Brúðarvalsinn
Hvernig fullkomnar þú rómatíkina í brúðkaupi þínu?
Við bjóðum upp á einkatíma í brúðarvalsinum. Þar er kenndur enskur vals og farið yfir helstu atriði í kringum hann. Brúðhjónin fá geisladisk sem er með tónlist sem þau geta síðan æft sig við og jafnvel notað í brúðkaupinu sjálfu. Einnig geta brúðhjón komið með sína eigin tónlist sem þau vilja nota í brúðkaupinu og þau eiga sínar sérstöku minningar um og við hjálpum við að læra að dansa við það lag.
Stuð fyrir hópinn!
Ef verið er að skipuleggja óvissuferð eða einhvers konar skemmtun fyrir hópa þá er tilvalið að fá danskennara til þess að hrista hópinn saman. Hægt er að hafa einhvers konar þema t.d. Diskó, Línudans, Grease, Salsa eða eitthvað grín. Kenndir eru einfaldir dansar sem allir eiga að ráða við og læra á 40-45 mínútum. Hópar geta komið í dansskólann og einnig er hægt að mæla sér mót við danskennarann úti í bæ.
Nánari upplýsingar er að fá á heimasíðu dansskólans www.dansskoli.is
Aldur:
Nemendur skólans eru á öllum aldri, yngst 3 ára.
Ég mun senda nokkrar myndir sem þið ættuð að geta notað.
Dansskóli
20 áraDansskóli Jóns Péturs og Köru var stofnaður 28. ágúst ár...
Skoða nánar »







