
Barnanámskeið Golfklúbbs Suðurnesja
Barnanámskeið Golfklúbbs Suðurnesja
Golfklúbbur Suðurnesja heldur golfleikjanámskeið í sumar fyrir börn á aldrinum
6-13 ára (f. 2012-2019).
Staðsetning:
Hólmsvöllur í Leiru. Mæting er í golfskálann.
Markmið námskeiðsins:
Markmið golfleikjanámskeiðanna er að kynna golfíþróttina fyrir börnunum og ýta undir áhuga þeirra á því að leggja stund á þessa fjölskylduvænu íþrótt. Farið verður í helstu þætti golfleiksins, allt frá púttum til upphafshögga og eru leiðbeiningar gjarnan í formi golfleikja. Mikilvægt er að á golfnámskeiðinu séu einnig fjölbreyttir leikir sem efla hreyfigetu barna en umfram allt að börnin hafi gaman og skemmti sér.
Í lok hvers námskeiðs verður boðið upp á Pylsupartí fyrir iðkendur.
Námskeiðin:
Nr. 1: 10.-13. júní kl. 09.30-12.00
Nr. 2: 10.-13. júní kl. 13.00-15.30
Nr. 3: 18.-20. júní kl. 09.30-12.00
Nr. 4: 18.-20. júní kl. 13.00-15.30
Nr. 5: 30.júní.-04. júlí kl.09.30-12.00
Nr. 6: 14.-17. júlí kl. 13-15.30
Skráning:
Skráning á síðunni https://www.sportabler.com/shop/gs og nánari upplýsingar hjá sp@gs.is
Gjald:
3 daga námskeið kr. 8.000
4 daga námskeið kr. 11.000
5 daga námskeið kr. 13.500
Yfirumsjón:
Sigurpáll Sveinsson íþróttastjóri GS ásamt leiðbeinendum úr afreksstarfi GS.
Gott að hafa í huga:
Börnin fá nestis pásu og við mælum með að þau komi með hollt og gott nesti með sér. Einnig er mikilvægt að börn komi klædd eftir veðri og þurfa alltaf að hafa með sér hlífðarfatnað því veðrið er oft breytilegt.
Golfsett og kylfur:
Börn mega endilega koma með sitt eigið golfsett eða kylfur en einnig er hægt að fá lánað á meðan á námskeiðinu stendur.