Golfkúbbur Vatnsleysustrandar
Kálfatjarnarvöllur stendur við þjóðveg 421 Vatnsleysustrandarveg n.t.t. við kirkjujörðina Kálfatjörn.
Þetta er glæsilegur 9 holu golfvöllur með allri helstu þjónustu sem í boði er á sambærilegum völlum.
Öll aðstaða fyrir kylfinga er til fyrirmyndar og einnig er rekin veitingasala í golfskálanum sem opin er öllum sem leið eiga um svæðið. Unnið er að merkingum á svæðinu og verða þar tilgreindar mannvistarleifar og minjar frá fyrri árum og er þetta hluti af því að gera svæðið aðgengilegra ferðafólki. Golfklúbbur Vatnsleysustrandar er einn fjölsóttasti ferðamannastaður í Vogum og nágrenni og lætur nærri að heimsóknir á síðasta ári hafi verið um 7.000.
Viltu gerast meðlimur? Smelltu þá hér.
Gjalskrá golfklúbbsins er hér
Heimasíða Golfklúbbsins er https://www.gvsgolf.is/