
Leikjanámskeið Njarðvíkurprestakalls sumarið 2025
Leikjanámskeið Njarðvíkurprestakalls sumarið 2025
Leikjanámskeið fyrir 6-8 ára börn í eina viku frá þriðjudeginum 10. júní til föstudagsins 13. júní frá kl. 8:30-16:00.
Námskeiðið er fyrir börn á aldrinum 6-8 ára. Miðað er við að börnin hafi lokið 1. bekk.
Það verður fjölbreytt og skemmtileg dagskrá í boði. Farið í ýmsa leiðangra í nágrenninu. Boðið upp á fjölbreytta inni og útileiki, íþróttir, föndur, söng og ýmsar stöðvar í frjálsu vali svo fátt eitt sé nefnt. Markmið okkar er að efla sjálfstraust barnanna og valdefla í gegnum leik og fræðslu, og stuðla að vináttu og kærleika.
Á hverjum degi munum við hafa fræðslu um lífið og tilveruna út frá kristilegum gildum.
Þátttakendur koma með eigið nesti alla dagana, það verða þrjár nestistundir yfir daginn.
Skráning og nánari upplýsingar inn á þessum hlekk
https://njardvikurkirkja.is/leikjanamskeid/