Sjólyst
Sjólyst hús Unu Guðmundsdóttur er í umsjón Hollvinafélags Unu og er húsið opið yfir sumartímann frá sumardeginum fyrsta til loka september. Húsið var nýlega gert upp af miklum myndarskap og er þar boðið upp á kaffi og vöfflur um helgar frá kl. 14:00 til 17:00
Það er notalegt að koma í Sjólyst og fræðast um líf og störf Unu Guðmundsdóttur og samfélagið í Garðinum. Húsið er staðsett neðst við Gerðaveginn og eru skilti og vegvísar sem sýna hvar það er. Öll eru hjartanlega velkomin.