Slökun í vatni með Aqua Jóga
Slökun í vatni með Aqua Jóga
Fyrir hverja: 16 ára+ og eldri borgar
Hvar: Sundlaug Akurskóla - Innri Njarðvík, Reykjanesbæ
Hvenær: flesta laugardaga kl. 14:15
Kostnaður: stakur tími 1500 kr.
Slökun í vatni er hugsað sem vettvangur fyrir fólk að koma saman og upplifa nærandi slökunarstund í þyngdarleysi umvafin heilandi vatninu.
Í Slökun í vatni kemur þú í sundlaugina með viðeigandi búnað og ef þú átt hann ekki til þá færðu hann lánaðan hjá Aqua Jóga. Saman ætlum við að slaka á og njóta þyngdarleysis í heitri sundlauginni. Hver tími byrjar á stuttri núvitundar æfingu og tengingu við vatnið.
Slökun í vatni er opin öllum. Lánssett eru í boði fyrir þá sem eiga ekki sitt eigið sett. Það er engin skráning, bara mæta. Slökun í vatni er flesta laugardaga í sundlaug Akurskóla í Innri-Njarðvík, Reykjanesbæ. Stakur tími kostar 1500 kr.
Gott er að fylgja Aqua Jóga á Facebook til að vita hvenær tímar verða í slökun í vatni.
https://www.facebook.com/aquajoga
Einnig erum við með hóp á Facebook sem gott er að ganga í.
Hann heitir Slökun í vatni í sundlaug Akurskóla. https://www.facebook.com/groups/1625177761077558/
Pálína Hildur Sigurðardóttir jógakennari í vatni, Usui/Holy Fire® III Reiki meistari og stofnandi Aqua Jóga býður ykkur velkomin í sundlaug Akurskóla .