
Þríþrautadeild UMFN kynnir
Í Þríþrautardeild UMFN er lagt stund á sund, hjólreiðar og hlaup. Deildin heldur utan um skipulagðar æfingar og þjálfun iðkenda deildarinnar.
3_N stendur einnig fyrir mótshaldi og keppnum.
Að auki hefur af og til verið boðið upp á sjósunds keppni svokallaða Marbendill
Félagar í 3N standa árlega fyrir viðburðum svo sem; Þorláksmessu sund 1500M og Kirkjuhlaupi í lok desember þar sem skokkað er á milli helstu safnaðarheimila og kirkja í Reykjanesbæ.