UNGBARNASUND
UNGBARNASUND
Námskeið í ungbarnasundi miðar að því að örva þroska barna s.s. hreyfiþroska, vitsmunaþroska, félagsþroska og skynþroska, ásamt því að venja börnin við vatnsumhverfi. Ungbarnasund er skemmtileg fjölskyldustund þar sem foreldrar ná góðum tengslum sín á milli og við barn/börn sín í dásamlegri sundlaug í Íþróttamiðstöð Akurskóla. Hitastig sundlaugarinnar er um 34 gráður sem hentar einstaklega vel fyrir yngstu börnin, á sundlaugarbakkanum eru skiptiborð fyrir börnin og þar er hlýtt og notalegt.
Námskeið vetrarins hefjast:
- október 2023
- janúar 2024
- febrúar 2024
- apríl 2024
Eftirfarandi hópar verða í boði á laugardögum:
9:15 Sundskóli 2-4 ára
10:00 Fjörfiskar (8 mán-2 ára)
10:45 Byrjendahópur (2-10 mánaða)
11:30 Framhaldshópur (4-14 mánaða)
12:15 Byrjendahópur (2-10 mánaða)
Námskeiðin eru 6 vikur + myndatökutími.
Verð 15.000 kr.
Sum stéttarfélög og sveitarfélög niðurgreiða námskeiðsgjald.
Skráning:
www.thjalfunivatni.is/ungbarnasund
Nánari upplýsingar fást á ungbarnasund.rnb@gmail.com