
Vinnuskóli Reykjanesbæjar kynnir !
Vinnuskóli Reykjanesbæjar býður öllum grunnskólanemum í 8. - 10. bekk sumarstarf. Vinnuskólinn er almennt fyrsta starf ungmenna og leggjum við áherslu á fræðandi, skemmtilegt og skapandi starfsumhverfi. Ungmenni fá tækifæri til þess að mynda ný tengsl, ásamt því að öðlast reynslu í mannlegum samskiptum og virðingu gagnvart umhverfi sínu. Vinnuskólinn tilheyrir menntasviði Reykjanesbæjar og eru því virkni, forvarnir og fræðsla í fyrirrúmi.
Hefðbundið starf Vinnuskólans felur í sér fegrun á umhverfinu, um leið og ungmennin þjálfast í vinnubrögðum sem skila sér út í samfélagið til framtíðar. Ungmenni hafa einnig kost á að sækja um fjölbreytt sumarstöf hjá samstarfsaðilum Vinnuskólans, þ.e. æskulýðs- og íþróttafélögum eða ákveðnum stofnunum Reykjanesbæjar.
Opnað verður fyrir umsóknir í vinnuskólann fyrir sumarið 2025 þann 5. maí næstkomandi.
Hafðu samband
Hafðu samband á netfangið vinnuskoli@reykjanesbaer.is eða í síma 420 – 3205.
Sími skrifstofu Vinnuskóla Reykjanesbæjar er opinn frá 15. maí - 17. ágúst,
mánudaga til fimmtudaga frá kl. 07:30 - 16:00.
Forstöðumaður vinnuskólans er Ólafur Bergur Ólafsson og svarar hann fyrirspurnum ásamt skrifstofustarfsfólki í sumar.
Við hvetjum bæjarbúa til þess að fylgjast með Vinnuskóla Reykjanesbæjar á samfélagsmiðlum en þar birtast reglulega myndir og fréttir af starfinu.