Zumba Gold
Zumba Gold er kennt af Jeanette F. Sicat sem hefur haft réttindi til að kenna Zumba Gold síðan 2014. Námskeiðið hefur verið kennt árlega að undanteknu Covid tímabilið. Í ár er námskeiðið haldið í Íþróttahúsinu einu sinni í viku og 60 mínútur í senn. Zumba Gold er bæði dans og leikfimistímar sem henta 60 ára og eldri og/eða byrjendum. Tímarnir eru uppbyggðir eins og hefðbundnir Zumba fitness tímar en hraðinn er minni og danssporin aðlöguð þannig að það henti hópnum betur. Það geta allir farið á sínum hraða og tekið á því en um leið skemmt sér í góðum félagsskap. Á þessu námskeiði læra þátttakendur öll grunnsporin og samhæfingu í dans ásamt því að öðlast meiri úthald.
Skráning er hjá Jeanette í gegnum netfangið jeanettesicat@hotmail.com