Fjörheimar félagsmiðstöð 10-12 ára
Félagsmiðstöðin í Fjörheimum býður upp á eitt virkasta félagsmiðstöðvastarf á Íslandi og eru opnanir alla virka daga fyrir alla grunnskólanemendur í Reykjanesbæ á aldrinum 10-15 ára. Opnanirnar eru aldurskiptar milli miðstigs og unglingastigs.
Dagskrá er birt mánaðarlega. Boðið er upp á allskyns afþreyingu og er dagskráin afar fjölbreytt og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Nánari upplýsingar á www.fjorheimar.is