Leikjanámskeið KFUM og KFUK í Reykjanesbæ Fyrir öll börn á aldrinum 6 - 9 ára
Leikjanámskeið KFUM og KFUK í Reykjanesbæ
Fyrir öll börn á aldrinum 6 - 9 ára
Leikjanámskeið I – 10. – 14. Júní – 5 dagar, 18.900 kr.
Leikjanámskeið II – 18 – 21. júní – 4 dagar, 15.200 kr.
Leikjanámskeið III – 24. – 28. júní - 5 dagar, 18.900 kr.
Á hverjum degi er boðið upp á vandaða og fjölbreytta dagskrá. Má þar nefna útivist, föndur, íþróttir og leiki. Lögð er áhersla á að hvert barn fái að njóta sín sem best. Á hverjum degi er sögð biblíusaga með góðum kristilegum boðskap að leiðarljósi.
Börnin mæta sjálf með nesti fyrir allan daginn en við erum með þrjár nestispásur, um morguninn, í hádeginu og kaffitíma. Við hvetjum þátttakendur til að taka með sér hollt og næringarríkt nesti.
Námskeiðin standa frá kl. 09.00 – 16.00, húsið opnar kl. 08:45.
Öll námskeiðin fara fram í húsi KFUM og KFUK í Reykjanesbæ sem er að Hátúni 36.
Skráning er á sumarfjor.is